Terms of service
Skilmálar claseazul.is
1. Almenn ákvæði
Skilmálar þessir gilda um kaup á vöru á vefsvæðinu claseazul.is. Seljandi er Vinklubburinn, Inc., skráð í Delaware-fylki í Bandaríkjunum, VSK-númer félagsins á Íslandi er 146654. Vörurnar eru fluttar inn af Borg99 ehf., kt. 410169-4369, Laugateigi 6, 105 Reykjavík, sem er opinber innflutningsaðili Clase Azul á Íslandi og heildsali.
Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur claseazul.is annars vegar og kaupanda hins vegar og teljast samþykktir við fyrstu vörukaup. „Kaupandi“ er einstaklingur sem kaupir vöru í skilningi laga um neytendakaup nr. 48/2003. Kaupandi getur einnig verið fyrirtæki og gilda þá lög um lausafjárkaup nr. 50/2000. Lög þessi gilda um réttarstöðu samningsaðila þegar sérstökum ákvæðum þessara skilmála sleppir.
2. Aldurstakmark
Áfengi er einungis selt einstaklingum sem náð hafa 20 ára aldri, sbr. áfengislög nr. 75/1998. Með því að leggja inn pöntun staðfestir kaupandi að hann sé 20 ára eða eldri. Móttakandi sendingar þarf að geta framvísað gildum skilríkjum við afhendingu og claseazul.is áskilur sér rétt til að hafna afhendingu til aðila sem ekki getur sannað aldur sinn.
3. Upplýsingar um verð
Öll verð á claseazul.is eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti og áfengisgjaldi og birt með fyrirvara um innsláttar-, prent- og myndvillur. Seljandi áskilur sér rétt til að afturkalla pantanir í heild eða að hluta ef vara er uppseld, skemmd eða gölluð, eða ef augljós verðvilla hefur átt sér stað. Í slíkum tilvikum verður haft samband við kaupanda og boðin ný vara eða full endurgreiðsla.
4. Greiðslur
Greiða má með öllum helstu debet- og kreditkortum sem og Apple Pay og Google Pay þar sem tæki styðja slíkar greiðslur. Allar greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt Shopify Payments og claseazul.is geymir aldrei kortaupplýsingar.
5. Afhending
Um afhendingu, sendingarkostnað og afhendingartíma gilda sendingarskilmálar claseazul.is.
6. Skilaréttur
Um skil og endurgreiðslur gilda skilaskilmálar claseazul.is. Aðeins er tekið við vöru í óopnuðum og óskemmdum umbúðum, nema um gallaða vöru sé að ræða.
7. Persónuvernd
Um meðferð persónuupplýsinga gildir persónuverndarstefna claseazul.is.
8. Ábyrg neysla
Seljandi hvetur til ábyrgrar neyslu áfengis. Áfengi er ekki selt eða afhent einstaklingum sem eru sýnilega ölvaðir.
9. Breytingar á skilmálum
Claseazul.is áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum. Gildandi skilmálar eru ávallt birtir á claseazul.is og gilda þeir skilmálar sem í gildi eru þegar pöntun er lögð inn.
10. Varnarþing
Rísi ágreiningur vegna skilmála þessara má reka mál vegna hans fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur samkvæmt ákvæðum laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála.
Fyrirspurnir vegna pantana og heildsölu: borg99@borg99.is