Shipping policy

Sendingarskilmálar

Afhendingarmöguleikar

Við sendum um allt land með Dropp. Tveir kostir eru í boði:

  • Sótt á Dropp-afhendingarstað – 990 kr. Sama verð um allt land, hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu eða landsbyggðinni. Þú velur afhendingarstað í greiðsluferlinu.
  • Heimsending með Dropp – 1.490 kr. Í boði á höfuðborgarsvæðinu.

Sendingarkostnaður birtist í körfunni áður en pöntun er staðfest.

Afhendingartími

Pantanir sem berast á virkum dögum eru að jafnaði sendar innan eins virks dags. Afhendingartími er 1–3 virkir dagar.

Aldursstaðfesting við afhendingu

Áfengi er aðeins afhent einstaklingum 20 ára og eldri. Móttakandi þarf að geta framvísað gildum skilríkjum við afhendingu. Sé enginn 20 ára eða eldri til staðar er sendingin ekki afhent og hún færð á afhendingarstað eða send að nýju gegn gjaldi.

Umbúðir

Hver Clase Azul karafla er handgerð keramík og er send í upprunalegri gjafaöskju með viðbótarhlífðarumbúðum. Berist sending skemmd skal tilkynna það innan 48 klukkustunda, sjá skilaskilmála.

Heildsala

Veitingastaðir, barir og fyrirtæki geta pantað beint í heildsölu hjá innflutningsaðilanum Borg99 ehf. á borg99@borg99.is.