Refund policy

Skilaréttur og endurgreiðslur

Skil á vöru

Aðeins er tekið við vörum í óopnuðum, óskemmdum og upprunalegum umbúðum, með innsigli órofið, innan 14 daga frá móttöku. Kaupandi ber kostnað af því að koma vörunni til skila nema varan sé gölluð eða röng vara hafi verið afhent. Hafa skal samband á borg99@borg99.is áður en vöru er skilað og tilgreina pöntunarnúmer.

Gölluð eða skemmd vara

Hver Clase Azul karafla er handgerð og engar tvær eru nákvæmlega eins; smávægileg frávik í málun og gljáa eru hluti af handverkinu og teljast ekki galli. Berist vara hins vegar brotin, lek eða með skemmt innsigli skal tilkynna það innan 48 klukkustunda frá móttöku, helst með ljósmynd. Þá er boðið upp á nýja vöru eða fulla endurgreiðslu, þar með talinn sendingarkostnað. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna gallann.

Endurgreiðslur

Endurgreiðsla fer fram á sama greiðslumáta og notaður var við kaupin, innan 14 daga frá því að varan hefur borist okkur og verið skoðuð. Það getur tekið greiðslukortafyrirtæki nokkra virka daga að birta endurgreiðsluna.

Afturköllun pöntunar

Hægt er að afturkalla pöntun án kostnaðar þar til hún hefur verið send. Sendu okkur línu á borg99@borg99.is með pöntunarnúmeri.

Seljandi: Vinklubburinn, Inc. · Innflutningsaðili: Borg99 ehf., Laugateigur 6, 105 Reykjavík