Plata, Reposado, Gold, Añejo og Ultra: hver er munurinn?

Plata, Reposado, Gold, Añejo og Ultra: hver er munurinn?

Nöfnin á Tequila-flöskum eru ekki vörumerki heldur lögbundnir þroskunar- og gæðaflokkar. Þau segja okkur hversu lengi vínið hefur legið á eikartunnum áður en það var sett á flösku. Hér er hver flokkur útskýrður með dæmum úr línu Clase Azul.

Plata (Blanco / Silver)

Óþroskað eða þroskað í innan við tvo mánuði. Tært og hreint, með Agave ávöxtinn sjálfann í forgrunni: sítrus, pipar og mild sæta. Clase Azul Plata er eldað í 72 klukkustundir í múrsteinsofnum og fer beint á flösku. Frábært í vandaða kokteila og fyrir þá sem vilja smakka Agave eins og hann kemur beint frá plöntunni.

Reposado („hvílt“)

Að minnsta kosti tveir mánuðir á eik, oftast tveir til tólf. Clase Azul Reposado liggur í átta mánuði í amerískum eikartunnum og fær þaðan karamellu, vanillu og heslihnetur án þess að eikin yfirgnæfi Agave ávöxtinn. Þetta er flaggskip Clase Azul og hvíta og kóbaltbláa karaflan er ein þekktasta flaska áfengisheimsins.

Joven (Gold)

Blanda af óþroskuðu og þroskuðu Tequila. Clase Azul Gold fléttar saman Plata, Reposado af franskri eik og átta ára Extra Añejo sem fékk lokaþroska í spænskum sherry-tunnum. Ilmur af elduðum Agave, ristaðri eik og þurrkuðum ávöxtum.

Añejo („þroskað“)

Eitt til þrjú ár á tunnum sem rúma að hámarki 600 lítra. Clase Azul Añejo liggur í 25 mánuði í amerískri eik: eik, appelsínumarmelaði, kanill og dökkt súkkulaði. Best er að drekka það eitt og sér við stofuhita.

Extra Añejo

Þrjú ár eða meira, flokkur sem varð til árið 2006. Clase Azul Ultra er þroskað í fimm ár, fyrst í amerískum viskítunnum og síðan á amontillado-, oloroso- og Pedro Ximénez sherry-tunnum. Svarta karaflan er skreytt platínu, silfri og 24 karata gulli og aðeins örfá eintök eru til á Íslandi.

Hvernig á að velja Tequila?

Því lengri þroskun, því meira af eik, sætu og dýpt, og því dýrara. Fyrir kokteila og ferskleika: Plata. Fyrir sopa með mat eða eftir mat: Reposado eða Añejo. Fyrir stóru stundirnar og safnara: Ultra. Sjá allt úrvalið á Tequila-síðunni.